Ólei ólei ólie ólei ég er að blogga, ég er að blogga !! Já ákvað
að gera hér heiðarlega tilraun til að blogga .. sérstaklega þar sem
ég og Sara erum bestar og duglegastar í því
nei nei hún Sara mín
eyddi nú hér þónokkrum mínutunum í að blogga eitt stykki blogg her
um daginn, snillingurinn gleymdi að copy-a það og TARRA! ekkert
blogg!! Þannig að fyrir hendur okkar Söru ætla ég að skella
hér inn eitt stykki blogg!
En já það er bara svo mikið búið að gerast hér undanfarnar vikur
að ég er bara ekki búin að hafa tíma né nennu í að blogga. En jæja
here goes;
1. Átti afmæli
Æðislegur dagur sá sem endaði með að ég,
mamma, pabbi, Aron og Sara fórum út að borða á Greifann
ekkert
smá gaman, vantaði reyndar hana Telmu
en jæja ... Fékk fullt af
pökkum þ.á.m. nýjan síma, svona samlokusíma, geggjað hálsmen og
eyrnalokka og úr og sokka frá henni Beggu í útlandinu
Síðan fékk
ég seinna frá Telmu, geðveik hálsmen og eyrnalokka frá Kúbu
Endaði svo á að einhver stelpa sem vinnur þarna kom inn með bara
RISA stóra skál með GEÐVEIKT girnilegum ís og sagði " Heyrðu eru
ekki einhverjir tveir sem eiga afmæli hér ?" Ég bara Demit þau eru
á vitlausu borði.. hugsaði ég þar sem ég var nú bara ein sem átti
afmæli .. en nei nie haldiði að mínir ástsælu foreldrar hafi ekki
verið búnir að hringja og panta tvö ísa .. fyrir mig og Söru hehe
sæt í sér þessar elskur.. 
2. Fékk bílprófið 
Kéllan gerði gott og náði því í
fyrsta
erum búin að vera að rúnta síðan :/ Er pottþétt farin að
halda uppi bensínstöðvunum hér á Norðurlandinu!
3. Hún Góa amma mín veiktist á Spáni og dó 25. febrúar
Yndisleg manneskja sem verður sárt saknað .... !!!
4. Telma kom
vildi samt að ástæðan fyrir komu hennar væri
önnur en ójæja æðislegt að hitta hana :* Gaman að hitta þessa elsku

5. Fórum suður í jarðaförina hennar ömmu .. Vá hef sjaldan
upplifað annað eins .. ekkert smá erfið en ótrúlega falleg
athöfn.
6. Uppgötvaði að ég væri að skíta á mig í skólanum .. aldrei
gott að fatta það !!
7. Telma fór 
en sé hana nú eftir nokkra daga .. Voru
nefnilega búin að panta öll fjölskyldan saman ferð til Spánar til
að hitta ömmu .. Þrátt fyrir allt sem gerðist þá ætlum við nú að
fara út og sjá þetta allt saman
Pottþétt yndislegur staður víst
hún amma elskaði að vera þarna 
8. Tel niður dagana með Söru þangað til við fórum til Danmerkur
.. Haldiði að við kéllurnar séum ekki búnar að panta okkur flug til
Danmerkur þann 22. maí 
erum að fara bara tvær að hitta Telmu
.. ætlum að vera bæði í Árhus og Kaupmannahöfn að verlsa og skemmta
okkur
Komum síðan heim þann 30. maí .. rétt fyrir ferminguna
hans Arons !!! Já "litli" bróðir minn er að fara að fermast .. dííí
líður eins og ég var fermd í gær sko .. vá hvað þetta er ógeðslega
fljótt að líða.
En jæja .. tel þetta nú vera heilmikið afrek
hehe .. sit nú
bara hérna heima að gera ekki neitt og ákvað að blogga í staðin smá
.. Er svo að spá í að kíkka kannski til ak til hennar Söru minnar
(ef ég nenni :/ Kannski maður fari bara út að rúnta með Fúsa
, Hauk og þeim eins og ALLAR síðustu helgar hehe
Gerði nú
stórmun í gær og rúntaði með Fúsa, Hauk OG Braga og Sólveigu

Ætla að fara að gera eitthvað
ætla líka að henda hér inn smá
dæmi sem Begga klukkaði mig með !! whúhúú elska svona klukk
dót
hehe 
4 Störf sem ég hef unnið við um
ævina?
1. Bæjarvinnan
2. Norðurströnd
3. Frystihúsið
4. Skúra á Ístöðinni fyrir hann föður minn
4 Bíó myndir sem ég gæti horft á aftur og
aftur?
1. Grease
2. Dirty Dancing 2
3. Clueless
4. 10 things I hate about you .. Hann Heath minn bregst ALDREI

4 Staðir sem ég hef búið á?
1. Umm vá .. á Dalvík hef ég búið í Hjarðarslóðinni, Skógarhólunum,
Stórhólsvegi, Ásvegi, Svarfaðarbraut og svo Dalbraut.
2. Á Akureyri var það á Hólmgarði og í Melateignum
3. Í Reykjavík höfum við Hvammshlíð og
Kirkjustétt 13
4. Og svo síðast en pottþétt ekki síst í Bandaríkjunum,
Chesapeake, Virginia í götunni 763 Remington Drive.
4 sjónvarpsþættir sem mig líkar
1. Friends
2. One Tree Hill
3. The O.C.
4. Greys Anatomy, Gilmore Girls og C.S.I.
4 Síður sem ég skoða daglega
1. www.blog.central.is/20 ... er með hana sem homepage
þannig að ég neyðist 
2. www.blog.cental.is/tysman
3. www.blog.central.is/pac og svo
líka www.blog.central.is/evamm
4. www.folk.is/begga..89
4 Staðir sem ég hef heimsótt í fríum?
1.
Danmörk
2. England
3. Skotland
4. Bandaríkin og svo Spánn eftir nokkra daga
4 matarkyns sem ég held uppá
1. Kjúkling og
kalkún ... Great þegar fuglaflensan kemur
2. Lasagna sem mamma gerir og einnig pizzuna sem mamma
gerir
3. Greifa brauðstangir
4. Salat með kjúkling og fetaosti og svo sætar kartöflur
með .. mmmm!
4 staðir sem ég vildi vera á núna?
1.
Í Bandaríkjunum
2. Á Ítalíu
3. Á Spáni með famelíunni
4. Í Danmörku með Telmu og Söru .. ohh þetta verður svo
geðveikt
4 sem ég klukka!
1. Sara .. haha þurfið þá
væntanlega að lesa annað svona í næsta blogg
2. Telmu
3. Hrund
4. Kidda .. svo þessi elska hafi eitthvað að gera í tímum